Þriðjudagur 18. ágúst 2026

Útlagning á nýrri almannavarnarlögn NSL-4 hafin

Útlagningarskipið Seven Navica kom til hafnar í Vestmannaeyjum í gærmorgun með hina nýju almannavarnarlögn, NSL-4, um borð. Um er að ræða 12,7 kílómetra langa vatnslögn sem framleidd var í Danmörku af fyrirtækinu NOV, en sama fyrirtæki framleiddi einnig NSL3 lögnina sem lögð var árið 2008.

Rétt um miðnætti í gær fór fyrri endi lagnarinnar í sjóinn þar sem björgunarskipið Þór tók við honum og útlagning hófst formlega. Í morgun höfðu rúmlega 600 metrar verið lagðir en verkið miðar vel og fara tæplega 100 metrar í sjóinn á hverri klukkustund. Áætlað er að lögnin taki land í Landeyjarsandi í kvöld.

Verkís verkfræðistofa hefur haft umsjón með verkefninu fyrir hönd Vestmannaeyjabæjar og er Brynjar Ólafson sviðstjóri umhverfis- og framkvæmdarsviðs verkefnastjóri fyrir hönd bæjarins.

Áætlað er að útlagningu ljúki um helgina.

 

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search