19.09.2020
Útivistartími barna og unglinga breytingum 1. september síðast liðin. Frá þeim tíma mega 12 ára börn og yngri vera úti til klukkan 20.00. 13 til 16 ára unglingar mega vera úti til klukkan 22.00.
Samkvæmt reglunum má bregða út af þeim fyrir eldri hópinn þegar unglingar eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Aldur miðast við fæðingarár.
Foreldrar gangi úr skugga um að raftækjanotkun eigi sér ekki stað á svefntíma
Lögreglan bendir á að foreldrum og forráðamönnum er að sjálfsögðu heimilt að stytta þennan tíma og setja börnum sínum reglur um styttri útivistartíma.
Þá áréttar lögreglan að útivistarreglurnar eru samkvæmt barnaverndarlögum. Þeim er m.a. ætlað að tryggja nægan svefn en hann er börnum og unglingum nauðsynlegur. Svefnþörfin er einstaklingsbundin en þó má ætla að börn og unglingar á grunnskólaaldri þurfi 10 tíma svefn á nóttu.
Mikilvægt er að fylgja því eftir að börn og unglingar fái nægan svefn. Í því felst m.a. að ganga úr skugga um að þau séu ekki í tölvunni eða símanum þegar þau eiga að vera komin í rúmið.
Kæru foreldrar virðið útivistareglur, það hefur marg oft sannað sig að einfaldlega fylgja þeim eftir getur forðað barninu þínu frá órelgu. Og afhverju ekki að fyrirbyggja það ???
Munið að góður svefn skiptir sköpum.