Í dag kl. 16:40 fer fram leikur ÍBV og Hauka í Íþróttamiðstöðinni í úrslitakeppni Olísdeild kvenna. Við hvetjum alla til að mæta og hvetja stelpurnar áfram til sigurs. En þetta er fyrsti leikur þeirra í úrslitakeppninni.
Miðasalan í fullum gangi á miðasöluappinu Stubbur. Krókódílum verður boðið í léttar veitingar í hálfleik.
Fyrir þau sem ekki komast þá er leikurinn sýndur í beinni á Stöð2 Sport.

