09.04.2020
Úrbeinaður fylltur lambahryggur með ostasósu
1 stk úrbeinaður lambahryggur
Fylling
Rifin börkur af einni sítrónu
1 hvítlauksostur
5 hvítlauksgeirar
2 dl fetaostur
Handylli steinselja
100 gr ristaðar pekanhnetur
1 msk rósmarín
salt og pipar
Setjið allt í matvinnsluvél og maukið. Leggið hrygginn flatan á borð, setjið lundirnar í miðjuna, ostamaukið yfir og lokið honum með sláturgarni.
ATH – Takið frá smá af fyllingunni til að maka yfir hann upprúllaðan.
Í fatið fer:
Gulrætur
Brokkolí
Rósmarín fersk eða þurkkað)
laukar (venjulegur, blaðlaukur, rauðlaukur eða smá af öllum)
salt og pipar
Setjið gulætur, brokkolí, rósmarín, lauk, salt og pipar á botninn á eldföstu formi. Hellið yfir 1 dl af vatni. Leggið hrygginn ofan á, kryddið með salti, pipar og rósmarín, setjið restina af fyllingunni yfir hann.
Bakið við 125°C í um 2 klst. Hækkið hitann í 180° síðustu mínúturnar.
Ostasósa
1 piparostur
1 villisveppaostur
nautakjötkraftur
grænmetiskraftur
salt og pipar
soð af hryggnum
Setjið osta, kraftana og krydd í pott og sjóðið á lágum hita.
Bætið soði við í lokin og hrærið saman.
Döðlugott með lakkrískurli
Hráefni
500 g döðlur, saxaðar smátt
250 g smjör
120 g púðursykur
150 g Kellogg‘s Rice Krispies
400 g Síríus rjómasúkkulaði
2 pokar Nóa lakkrískurl
Aðferð
Döðlur og smjör brætt saman í potti. Púðursykurinn er bræddur með þangað til döðlurnar eru orðnar mjúkar.
Blandið Rice Krispies og lakkrískurli saman við og setjið í form í frysti í 10 mínútur.
Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði. Hellið yfir Rice Krispiesblönduna og frystið í um það bil 30 mínútur.
Skerið í bita, berið fram og njótið.