Sunnudagur 24. september 2023

Upplýsingar frá GRV – 3 kennarar og einn stuðningsfullrúi í sóttkví

18.03.2020

Ykkur til upplýsinga þá eru 3 kennarar og einn stuðningsfulltrúi í sóttkví. Einnig höfum við fengið tilkynningar um nemendur sem komnir eru í sóttkví.
Eftir þeim upplýsingum sem við höfum, eru þessir einstaklingar einkennalausir og ekki smitaðir eins og staðan er í dag.

í framhaldi langar mig að benda á eftirfarandi leiðbeiningar frá smitrakningarteymi almannavarna.

Smitrakningarteymi almannavarna og sóttvarnalæknis vill árétta eftirfarandi:

Einstaklingur fer í sóttkví ef hann hefur:
Mögulega umgengist einstakling með nýja kórónuveirusýkingu
Verið á áhættusvæði en er ekki ennþá veikur sjálfur.

Aðrir á heimilinu sem ekki voru útsettir fyrir smitinu þurfa EKKI í sóttkví. Ef um ungt barn er að ræða er nauðsynlegt að fullorðinn einstaklingur fari í sóttkví með barninu.
Mikilvægt er að skipuleggja umgengni á heimilinu þannig að þeir sem eru í sóttkví og hinir séu sem allra minnst á sömu svæðum íbúðarinnar. Í sameiginlegum rýmum eins og á salerni og í eldhúsi þarf að gæta sérstaks hreinlætis.
Sóttkví vegna COVID-19 eru 14 dagar frá þeim degi sem einstaklingur var nálægt smituðum einstakling. Ef einstaklingur í sóttkví fær einkenni á hann að hringja í heilsugæsluna sína næsta virka dag til að fá sýnatöku.
Frekari leiðbeiningar vegna sóttkvíar í heimahúsi er að finna á https://www.covid.is/flokkar/sottkvi.is og www.landlæknir.is
Vinsamlega kynnið ykkur leiðbeiningarnar vel. Ef spurningar vakna má hafa samband við netspjall á www.heilsuvera.is

Bestu kveðjur
Anna Rós Hallgrímsdóttir
Skólastjóri GRV

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is