04.04.2020 kl 23:15
Ekki er von á nýrri tilkynningu frá Aðgerðastjórn fyrr en um kvöldmatarleytið á morgun með nýjar tölur fyrir eyjarnar.
Á morgun er Pálmasunnudagur.
Pálmasunnudagur er trúarleg hátíð kristinna sem fellur á sunnudaginn fyrir páskana og er fyrsti dagur dymbilviku.
Pálmasunnudagur er haldinn til minningar um innreið Jesú í Jerúsalem, þegar fólkið breiddi klæði sín á veginn og veifaði pálmagreinum til að fagna komu hans, en þannig var konungum fagnað á þeim tímum.
Í kaþólskum kirkjum og sumum lúterskum fer fram pálmavígsla og helgiganga á þessum degi. Þá er pálmagreinum, eða greinum sem líkjast þeim, úthlutað til safnaðarins, og að lokum er helgiganga með söng.
Þá er sungin ævaforn lög, sem tilheyra þessari athöfn. Sumstaðar eru vígðu pálmagreinarnar, sem ekki ganga út, brenndar og askan geymd fram á næsta öskudag, en áður fyrr var henni stundum dreift yfir söfnuðinn
Þá eru þið nokkuð fróðari um þennan merkisdag. 🙂