Vestmannaeyjabær, í samstarfi við Ferðamálasamtök Vestmannaeyja, hefur ákveðið að starfrækja upplýsingamiðstöð (Tourist Information Center) fyrir ferðamenn sem koma til Vestmannaeyja. Um er að ræða tilraunaverkefni sumarið 2023 og er upplýsingamiðstöðin til húsa að Básaskersbryggju 2, þar sem útivistarverslunin Icewear var áður til húsa
Nökkvi Már Nökkvason, verður í forsvari fyrir upplýsingamiðstöðina sem opnaði í gær, mánudaginn 22. maí. Opið verður alla virka daga frá kl. 9:00 til 16:00, en lokað verður um helgar.
Símanúmer upplýsingamiðstöðvarinnar er 847 8880 og netfangið er tourinfo@vestmannaeyjar.is
Á vef segir: Vestmannaeyjabær vill þakka öllum þeim sem komu að uppsetningu og frágangi á aðstöðunni, sem er til fyrirmyndar.