Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis bjóða til upplýsingafundar í Björgunarmiðstöðinni að Skógarhlíð 14, klukkan 14 í dag.
Á fundinum í dag mun Ólafur Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, ræða aukna getu heilsugæslunnar til að svara fyrirspurnum, þá sérstaklega í gegnum síma og Heilsuveru. Þórólfur Guðnason fjallar um stöðu og þróun mála hér á landi og erlendis og Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn fjallar um yfirstandandi verkefni almannavarna.
Blaðamenn fá tækifæri til að bera fram spurningar. Vísir verður í beinni útsendingu frá fundinum en fundurinn verður táknmálstúlkaður.
Líkt og síðustu daga er tilefni fundarins fyrst og fremst að stuðla að öflugri upplýsingagjöf til fjölmiðla og þar með til almennings.