Það var ljót aðkoman í kirkjugarðinum okkar þegar Helga og Arnór komu í garðinn í morgun 6.október en það eru örfáar vikur síðan að það var gengið um garðinn og valdið svona skemmdum eins og í þetta sinn. Þarf bara ekki að fara að setja upp eftirlitsmyndavélar á þetta svæði ? Maður spyr sig.
Hérna eru myndir og færsla sem Helga Jónsdóttir setti inn hjá sér fyrir stuttu: Hvað getur maður sagt? Svona var ástandið í kirkjugarðinum áðan. Fyrst héldum við að þetta væri út af óveðrinu… en við nánari skoðun þá er augljóst að þetta er af mannavöldum.
Uppfært: Tígli bárust þær upplýsingar frá íbúa við kirkjugarðinn að hún hafi verð vitni af því að krossar skekktust , styttur fuku í óveðrinu í gær, við auðvitað vonum að þetta hafi eingöngu verið vegna veðurs.