Sunnudagur 15. nóvember 2026

Uppfærð staða á NSL-4

Upplýsingar til íbúa um stöðu mála varðandi almannavarnarlögnina NSL-4.

Enn er beðið eftir lokaskýrslu SUSEA7 vegna tjónsins og liggja því ekki fyrir nýjar upplýsingar frá útlagnaraðila að svo stöddu.

Samhliða þeirri vinnu hefur verið unnið að undirbúningi þrýstiprófana á lögninni í samráði við NOV, framleiðanda lagnarinnar. Framkvæmdalýsing hefur verið lögð fyrir og samþykkt af NOV og er stefnt að því að hefja þrýstiprófanir í þessari viku, verði allar forsendur fyrir hendi. Prófunin verður framkvæmd með stigvaxandi þrýstiaukningu samkvæmt fyrirfram skilgreindu verklagi.

Markmið prófananna er að afla skýrari upplýsinga um ástand lagnarinnar og hvernig hún bregst við þegar hún er sett undir álag. Tryggingafélögum hefur verið gerð grein fyrir fyrirhuguðum aðgerðum og þau eru upplýst um framgang málsins.

Þetta kemur fram á vefsíðu Vestmannaeyjabæjar og munu frekari upplýsingar verða birtar um leið og niðurstöður lokaskýrslu og fyrirhugaðra prófana liggja fyrir.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search