20.10.2020
Jarðskjálfti af stærð 5,6 reið yfir klukkan 13:43 í dag í Núpshlíðarhálsi, 5 km vestur af Seltúni, á Reykjanesskaga. Skjálftinn fannst víða á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum. Yfir 50 eftirskjálftar hafa fylgt í kjölfarið.
Skjálftinn fannst vel í Vestmannaeyjum einnig samkvæmt upplýsingum frá mbl.is fannst hann líka vel í Borgarnesi. Þá hefur mbl.is fengið ábendingu um að borð hafi gengið til og ljósakrónur sveiflast lengi á eftir á norðanverðu Snæfellsnesi vegna skjálftans.
Vefur Veðurstofunnar lá niðri um stutta stund í kjölfar skjálftans, ekki er vitað hvort það sé vegna skjálftans. Mikið álag virðist vera á símkerfi Veðurstofunnar.
Fréttin hefur verið uppfærð.