Herjólfur III hefur legið við bryggju í um tvö ár og það hefur reynst erfiðara og tímafrekara að fá haffærniskírteini fyrir hann áætlanir gerðu ráð fyrir. Flest atriði eru á áætlun utan að beðið er svara um afgreiðslutíma á íhlutum í mikilvægan öryggisbúnað sem gæti tafið það að Herjólfur III fái haffærniskírteini.
Varðandi öryggisbúnaðinn komu fram kröfur sem voru umfram það sem Vegagerðin hafði áætlað að þyrfti fyrir haffærnina og það hefur fyrst og fremst sett tímalínuna úr skorðum.

