04.02.2020
Nú hefur ungmennaráð Vestmannaeyjabæjar verið endurvakið eftir nýjum lögum og reglum. Eru það miklar gleði fréttir fyrir sveitafélagið.
Tilgangurinn með ungmennaráði er annars vegar að veita ungmennum fræðslu og þjálfun í lýðræðislegum vinnubrögðum og hins vegar að skapa vettvang og leiðir til þess að gera ungmennum kleift að koma hugmyndum og skoðunum sínum á framfæri m.a. við kjörna fulltrúa sveitarfélagsins. Eins að ungmennaráð komi skoðunum ungs fólks á framfæri og verði ráðgefandi um málefni sem þau varðar.
Í ungmennaráði mega þau ungmenni sitja sem eru á aldrinum 13-20 ára og hafa lögheimili í Vestmannaeyjum.
Þeir sem skipaðir eru í ungmennaráð eru:
Emma Jónatansdóttir
Snorri Rúnarsson
Daníel Hreggviðsson
Guðbjörg Sól Sindradóttir
Eva Sigurðardóttir
Ægir Freyr Valsson
Daníel Scheving

Virkilega vel gert, Tígli hlakkar til að fylgjast með þessu flotta ráði, til hamingju krakkar.