Undirskriftir hjá meistaraflokki kvenna

Átta ungar og efnilegar knattspyrnukonur skrifuðu undir samning við ÍBV í dag. Þessar stelpur hafa komið upp alla yngri flokka ÍBV og eru miklar vonir bundnar við þær næstu ár.

Stelpurnar eru Berta Sigursteinsdóttir, Helena Jónsdóttir, Inga Dan Ingadóttir, Ragna Sara Magnúsdóttir, Selma Björt Sigursveinsdóttir, Sunna Einarsdóttir, Thelma Sól Óðinsdóttir og Þóra Björg Stefánsdóttir.

Þóra Björg skoraði sjö mörk í sumar og var valin efnilegust í meistaraflokki félagsins. Selma Björt var markahæst í 2. flokki félagsins með 10 mörk en þar var Helena valin best, Ragna efnilegust og Thelma ÍBV-ari ársins.

Stelpurnar léku flestar mikilvæg hlutverk í meistaraflokki félagsins í ár og vonast ÍBV til þess að allar þessar stelpur muni koma til með að leika lykilhlutverk þar í framtíðinni.

 

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is