Vestmannaeyjabær hefur verið í viðræðum við innviðaráðherra um útboð á flugi til og frá Vestmannaeyjum. Vinna varðandi undirbúning útboðsgagna hefur farið fram hjá Vegagerðinni og í innviðaráðuneytinu og hefur Vegagerðin skilað af sér útboðsgögnunum til ráðuneytisins, en þó á ráðuneytið eftir að tryggja fjármagn vegna ríkisstyrks. Bæjarráð mun funda með ráðherra í lok ágúst.
Á fundi bæjarráðs í gær lýsti ráðið áhyggjum af því að vinna við undirbúning á ríkisstyrktu flugi til Vestmannaeyja gangi mun hægar en vonir stóðu til um. Gríðarlega mikilvægt er að sú vinna sem eftir er í málinu gangi hratt og vel og að verkefninu verði tryggt fjármagn þannig að áætlunarflug til Vestmannaeyja geti hafist í haust.

