Á fundi sínum nú í hádeginu í dag ræddi bæjarráð um nauðsyn þess að leggja nýja vatnsleiðslu til Vestmannaeyja. „Um er að ræða öryggismál fyrir einstaklinga og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Ef leiðslan sem flytur vatn af meginlandinu til Eyja myndi bresta, þá skapast neyðarástand í Vestmannaeyjum með tilheyrandi fólksflutningum frá Eyjum. Þrátt fyrir að innviðaráðherra hafi hafnað erindi Vestmannaeyjabæjar um fjárstuðning til lagningar nýrrar vatnslagnar verða Vestmannaeyjabær og HS veitur, rekstraraðili og eigandi vatnsveitunnar, að hefja undirbúning að slíkri framkvæmd,“ segir í fundargerð ráðsins.
Niðurstaða umræðunnar var sú að skipa undirbúningshóp um lagningu nýrrar vatnslagnar til Vestmannaeyja. Hópurinn er skipaður Írisi Róbertsdóttur bæjarstjóra, Eyþóri Harðarsyni, fulltrúa bæjarráðs, framkvæmdastjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs og framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs. „Aðeins er mögulegt að leggja nýja neðansjávarlögn að sumri til og ekki í boði að bíða með verkefnið ef vatnsleiðslan á að verða að veruleika árið 2024.“

