Tvö nemendateymi frá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum hafa tryggt sér sæti í úrslitum Fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla – JA Iceland 2026. Alls komust fjörutíu fyrirtæki úr framhaldsskólum víðs vegar að af landinu áfram í keppninni.
Eyjafyrirtæki meðal þeirra bestu
Fyrirtækin Eyjankonfekt og Rit og rútína, sem bæði eru rekin af nemendum FÍV, eru meðal þeirra sem keppa til úrslita. Þetta er frábær árangur og munum við fylgjast spenntir með framvindu keppninnar.
Næstu skref í keppninni
Fram undan eru viðtöl við dómnefnd sem fara fram í Arion banka mánudaginn 27. apríl frá kl. 9:00 til 12:30. Uppskeruhátíð keppninnar verður síðan haldin þriðjudaginn 28. apríl frá kl. 13:00 til um kl. 16:30–17:00.
Tækifæri á alþjóðavettvangi
Verðlaunin í keppninni eru eftirsóknarverð. Sigurvegarar fá tækifæri til að keppa fyrir hönd Íslands á GEN_E 2026, stærstu nýsköpunarkeppni ungmenna í Evrópu, sem fram fer dagana 7.–10. júlí.
Þau fyrirtæki sem lenda í öðru og þriðja sæti fá einnig spennandi tækifæri til að taka þátt í Arctic Youth Championship í Tromsø dagana 18.–21. maí.
Viðurkenningar og verðlaun
Verðlaun verða afhent í 13 flokkum og fá sigurvegarar viðurkenningaskjöl ásamt glæsilegu glerlistaverki eftir Jónas Braga glerlistamann.
Hér listinn yfir þau sem eru komin áfram:


