Tveir í einangrun og fjórir í sóttkví

Tilkynning frá Aðgerðastjórn í Vestmannaeyjum 31. ágúst 2021
Covid-19.

 

Í dag, þriðjudaginn 31. ágúst, eru 2 einstaklingar í einangrun í Vestmannaeyjum vegna Covid-19 og 4 í sóttkví.

 

Höldum áfram að passa okkur og gætum vel aðeinstaklingsbundnum smitvörnum og almennum sóttvörnum, virðum fjarlægðartakmarkanir og notum handspritt og andlitsgrímu.

 

Þeir sem finna fyrir flensueinkennum eru hvattir til að fara í sýnatöku og halda sig til hlés þar til niðurstaða liggur fyrir. Á HSU í Vestmannaeyjum, Sólhlíð 10, eru tekin sýni alla virka daga kl. 13:00-13:15. Best er að skrá sig í sýnatöku gegnum vefsíðuna Heilsuvera.is en einnig má hafa samband við heilsugæsluna í síma 432-2500. Mæting í sýnatöku er við inngang á 1. hæð, aðkoma frá Helgafellsbraut. Raðir geta myndast utandyra á álagspunktum í sýnatöku og er fólk hvatt til að klæða sig eftir veðri. Allir sem mæta í sýnatöku eiga að nota andlitsgrímu.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is