Um þessar mundir spilar U16 ára landslið kvenna á Opna Evrópumótinu sem haldið er samhliða Partille-Cup í Gautaborg. ÍBV á tvo frábæra fulltrúa í íslenska hópnum, en það eru þær Alexandra Ósk Viktorsdóttir og Herdís Eiríksdóttir. Stelpurnar hafa leikið 4 leiki til þessa í mótinu. Þær léku fyrst í 4 liða riðli ásamt Noregi, Portúgal og Póllandi. Íslenska liðið gerði jafntefli í fyrsta leik gegn Noregi en laut svo í lægra haldi fyrir hinum tveimur andstæðingum sínum.
Í morgun hófu stelpurnar svo keppni um 13.-17.sæti keppninnar.
Þær byrjuðu á sigri fyrr í dag þegar þær kjöldrógu eistneska liðið 27-10.
Liðið á svo 3 leiki eftir, en hérna er dagskrá yfir það sem eftir lifir móts:
Í dag, 6.júlí kl.17:30
Ísland-Lettland
7.júlí kl.9.00
Ísland-Færeyjar
8.júlí kl.8:30
Ísland-Finnland


