Laugardagur 17. október 2026

Togararnir landa fyrir austan og fyrir vestan

Ísfisktogararnir í Síldarvinnslusamstæðunni hafa bæði verið að veiðum fyrir austan og vestan landið að undanförnu. Jóhanna Gísladóttir GK landaði á Djúpavogi á sunnudag og er að landa í Grindavík í dag. Vestmannaey VE landaði í Grundarfirði á mánudag og var síðan að landa í Hafnarfirði í gær. Þá landaði Bergey VE í Neskaupstað í fyrradag. Heimasíðan ræddi við skipstjórana og fékk fréttir af aflabrögðum.

Egill Guðni Guðnason á Vestmannaey sagði að fyrri túr þeirra hefði gengið glimrandi vel. ”Í fyrri túrnum vorum við að veiðum í Víkurálnum og fengum þar fullfermi af gullkarfa. Við enduðum að vísu túrinn á Flákanum á Breiðafirði og fengum þar dálítið af þorski og ýsu. Það er langt að fara frá Eyjum í Víkurálinn. Við vorum í 28 tíma á leiðinni. Í Víkurálnum er óþverrabotn og það var dálítið rifið. Við fórum út strax að lokinni löndun í Grundarfirði og þá var farið beint í Víkurálinn á ný þar sem skipið var fyllt af gullkarfa í blíðuveðri. Að því loknu var haldið til löndunar í Hafnarfirði. Að löndun lokinni verður siglt til Eyja og síðan stendur til að veiða fyrir sunnan land,” sagði Egill Guðni.

Jón Valgeirsson á Bergey sagði að aflinn hjá þeim hefði verið blandaður. ”Lögð var áhersla á að blanda aflann og þetta var ýsa, þorskur og ufsi hjá okkur. Reyndar var reynt við ýsu allan tímann en hún er býsna erfið. Líkur eru á að ýsan haldi sig innar, jafnvel inni á fjörðum. Við byrjuðum á Breiðamerkurdýpinu þar sem fékkst aðeins af ufsa, síðan var haldið á Lónsbugtina þar sem vart varð við ýsu en lengst vorum við á Hvalbaknum í ýsureitingi og þorski. Undir lokin var haldið á Glettinganesflakið en þar var býsna tregt. Aflinn í túrnum var um 70 tonn þannig að við náðum ekki alveg að fylla,” sagði Jón.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search