Föstudagur 13. nóvember 2026

Tjaldurinn mættur og fyrstu tildrurnar sáust í morgun

„Já, nú er vorið að koma. Sá fyrstu tjaldana núna áðan,“ sagði Jóhann Guðjónsson, oft kenndur við Þrist VE sem hann stýrði og gerði út á árum áður þegar hann sló á þráðinn. Jói er mikill náttúruunnandi og fylgist með komu fugla og öðrum dásemdum sem náttúran hefur upp á að bjóða.

„Það gleður marga að fá fréttir af komu þessara vorboða. Sá fimm tjalda undir Löngu í morgun. Í dag er tíundi mars sem er heldur í seinna lagi en fyrst man ég eftir að hafa séð tjaldinn fjórða mars. Þá sá ég líka fyrstu tildrurnar í dag, ellefu stykki á Nausthamrinum. Tildran er farfugl sem verpir á Norðurslóðum oftast stutt frá sjó og mætir snemma á vorin.“

Jói á orðið erfitt með gang en lætur það ekki stoppa sig. Keyrir um með kíki og skoðar það sem vekur forvitni hans.

„Áhuginn vaknaði þegar ég var á grafskipinu Vestmannaey með Jóni á Gjábakka og Lalla á Sæfaxa. Miklir höfðingjar sem gaman var að vera með. Þeir fylgdust með fuglalífi við höfnina og ég hélt því áfram eftir að þeir féllu frá,“ sagði Jói sem enn er hress í anda þó lappirnar hafi gefið sig. Býr í góðu yfirlæti í Eyjahrauni.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search