04.03.2020
„Nú er fyrsti vorboðinn kominn.
Ég sá tvo tjalda suður á Breiðabakka í gærmorgun og og nú er betri tíð í sjónmáli,“ sagði Jói á Þristinum VE, Jóhann Guðjónsson, þegar hann hafði samband í gær.
„Ég ætlaði ekki að trúa mínum eigin augum en þegar ég brá upp kíkirnum sá ég að þetta var rétt. Hávarður Sigurðsson var þarna líka, mikill fuglaáhugamaður og hann staðfesti þetta með mér.
Tjaldurinn er í fyrra fallinu, kemur núna þriðja mars, sá þann fyrsta fjórða mars í fyrra sem var óvenju snemmt.
Tjaldurinn er sannur gleðigjafi og þegar hann kemur veit maður að vorið er að nálgast,“
sagði Jói að endingu.