27.12.2020
Tígull heyrði í Arnóri Arnórssyni formanni björgunarfélagsins nú um hádegi en þá var veðrið gengið niður þrátt fyrir að gul viðvörun sé í gangi allt til klukkan 21:00 í kvöld, en eins og oft þá er eins og veðrið sé farið framhjá paradísareyjunni okkar.
En björgunarfélagið fór í tíu verkefni í morgun en þau voru öll minniháttar eða eins og Arnór sagði þá rétt sluppu þau. Tveir bátar voru að losna Frár og Maggý en Björgunarfélagið sá til þess að ekki varð vesen úr því.
Á morgun byrjar árlega flugeldasala björgunarfélagsins, þau treysta á þinn stuðning.
Hægt er að versla á netinu eyjar.flugeldar.is Afhending pantana fer fram dagana 28. des til 31. des í Flugeldasölu Faxastíg 38, neðri hæð.
Ef þú ætlar að mæta á staðinn þá hvetjum við þig að passa sóttvarnir, mæta með grímu og halda 2 m fjarlægðinni.

