Í gær var fundur fræðsluráðs Vestmannaeyjabæjar og var þar tekin fyrir viðbygging við Hamarskóla. Tillaga var lögð um drög að tímalínu þar sem áætlað var að byggingin yrði klár fyrir skólaárið 2022-2023.
Skipa faghóp og leggja til að skipuð verði byggingarnefnd
Ráðið skipar faghóp (þarfagreiningahóp) sem samanstendur af skólastjóra GRV, skólastjóra tónlistaskóla, aðstoðarskólastjóra Víkurinnar, fræðslufulltrúa, forstöðumanni frístundavers, húsverði Hamarsskóla, matráði Hamarsskóla, fulltrúa kennara GRV, fulltrúa tónlistarkennara auk framkvæmdastjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar.
Fræðsluráð leggur jafnframt til að bæjarstjórn skipi byggingarnefnd á fundi bæjarstjórnar þann 5. desember nk. segir enn fremur í afgreiðslu ráðsins.