16.03.2020
Í ljósi heimsútbreiðslu COVID-19 og tilmæla almannavarna og sóttvarnalæknis, hefur Vestmannaeyjabær gripið til þeirrar ráðstöfunnar að takmarka opnunartíma stofnana bæjarins. Tilgangurinn er að stuðla að öryggi starfsmanna og lágmarka hættu á að þjónustan rofni.
Fjöldatakmarkanir eru í íþróttahúsi.
Athugið að boðið er upp á vistun leikskólabarna annan hvern dag til þess að mæta skilyrðum samkomubannsins.
Opnunartímar stofnana eru sem hér segir:
Stofnun | Opnunartímar á starfsstöð |
Grunnskóli Vestmannaeyja | 4 kennslustundir á dag. Nánara skipulag kemur frá skóla. |
Víkin 5 ára deild | 7:45-15:30 (sjá nánari útfærslu frá skóla) |
Kirkjugerði | 7:45-15:30 (sjá nánari útfærslu frá skóla) |
Sóli | 7:45-15:30 (sjá nánari útfærslu frá skóla) |
Frístund | 12-15 í Hamarskóla (sjá nánari útfærslu frá skóla) |
Tónlistarskóli | Óbreytt starfsemi. Hópatímar falla niður |
Sambýlið | Engar heimsóknir leyfðar |
Hraunbúðir | Engar heimsóknir leyfðar |
Heimaey hæfingarstöð | Engar heimsóknir leyfðar |
Endurvinnslan | Lokuð tímabundið |
Eldheimar | 13-15 miðvikudaga til sunnudaga |
Sagnheimar | 13-15 alla virka daga |
Bókasafn | 13-15 alla virka daga |
Héraðsskjalasafn | 13-15 alla virka daga |
Bæjarskrifstofur- Bárustíg 15 | 10-12 alla virka daga |
Bæjarskrifstofur- Rauðagerði | 10-12 alla virka daga |
Bæjarskrifstofur- Tæknideild | 10-12 alla virka daga |
Höfnin | Enginn opnunartími.Vaktsími hafnarvarða 893-0027 |
Þjónustumiðstöðin | Enginn opnunartími. Símanúmer 488-2500 |
Féló (félagsmiðstöðin) | Lokað þessa viku vegna flutning og svo endurskoðað |
Íþróttamiðstöðin | Óbreyttur opnunartími. Breytt starfsemi (útfærsa auglýst) |
Herjólfshöllin | Takmarkaður aðgangur (16 ára og eldri hafa aðgang) |
Týsheimilið | Lokað |
Hægt er að beina erindum í gegnum síma á hefðbundnum opnunartímum (dagvinnutíma) eða með tölvupósti á postur@vestmannaeyjar.is. Þeim tilmælum er beint til fólks að beina sem flestum erindum með þeim hætti og takmarka komur á staðinn. Hægt verður að hringja á hefðbundinn hátt í gegnum skiptiborð, s. 488 2000. Ef ekki næst í starfsmann taka þjónustufulltrúar skilaboð.
Hjá nokkrum stofnunum bæjarins hefur verið ákveðið að skipta upp starfsfólki í ninni hópa (þar sem sumir vinna heima og aðrir á vinnustað) til að minnka líkur á að allir veikist á sama tíma og tryggja að þjónustan rofni ekki.
Fjölmennir fundir og viðburðir á vegum bæjarins eru ekki heimilir.
Ákvörðun um skerta opnunartíma stofnana bæjarins á við meðan samkomubann stjórnvalda er í gildi, en ákvörunin endurskoðaðuð reglulega.
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri