Tilkynning – Sýnatökur fyrir COVID-19

29.04.2020

Dagana 1. – 3. maí n.k. verður í samvinnu við Íslenska erfðagreiningu boðið upp á sýnatökur í Vestmannaeyjum fyrir einstaklinga sem ekki hafa verið í sóttkví eða einangrun vegna COVID-19 – á sambærilegan hátt og verið hefur í gangi fyrir einstaklinga sem hafa verið í sóttkví og einangrun. Um er að ræða rannsókn þar sem tekin eru blóðsýni og háls- og nefkoksstrok. Tilgangurinn er m.a. að skoða betur hversu margir hafa tekið smit, þ.e.a.s. myndað mótefni gegn veirunni sem veldur COVID-19.

Hægt er að bóka tíma á vefsíðunni bokun.rannsokn.is     (beinn hlekkur: http://bokun.rannsokn.is/q/eyjar)

Ekki verður tekið við tímapöntunum í gegnum síma HSU.

Sýnatökur fara fram við HSU (heilbrigðisstofnunina) við bílastæði sunnan til (bílastæði á milli Sóla og HSU).

Þeir sem hafa lokið sóttkví/einangrun og eiga eftir að koma í sýnatöku geta haft samband í gegnum tölvupóstfangið eyjaklukk@hsu.is ef þeir vilja fá tíma.

Sumarkveðjur,

Hjörtur Kristjánsson

Umdæmislæknir sóttvarna

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is