Þriðjudagur 5. desember 2023
iþrottamistodin

Tilkynning frá Vestmannaeyjabæ – tímabundin lokun Íþróttamiðstöðvar

19.03.2020 kl 23:27

Tímabundin lokun Íþróttamiðstöðvar

Starfsmaður Íþróttamiðstöðvar hefur greinst með kórónuveirusýkingu en viðkomandi hefur ekki verið við störf undanfarna daga. Í samráði við umdæmislækni sóttvarna, aðgerðastjórn og rakningarteymi hefur þó verið tekin ákvörðun um að loka Íþróttamiðstöðinni á meðan málið er skoðað nánar. Þetta er gert í því skyni að hindra mögulega útbreiðslu smits. Starfsfólk fer í úrvinnslukví á meðan rakningarteymi vinnur úr upplýsingum og i framhaldi verður haft samband við þá sem þurfa að fara í lengri og eiginlega sóttkví.

Starfsfólk hefur verið látið vita af stöðunni sem upp er komin og verður lokað þar til tekin hefur verið ákvörðun um annað.                                                                                                                                                              

Farið verður yfir stöðuna með viðbragðsaðilum eftir því sem málin skýrast og verða starfsmenn og íbúar upplýstir um þróun mála.

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri

Grétar Þór Eyþórsson, forstöðumaður íþróttamannvirkja

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is