Tilkynning frá umdæmislækni sóttvarna

27.03.2020

Eins og flestir Eyjamenn vita hafa margir einstaklingar greinst með COVID-19 smit í Vestmannaeyjum. Ýmsum sóttvarnaaðgerðum er beitt til að halda frekara smiti í skefjum. Markmiðið með þeim er m.a. að „greina fljótt – rekja fljótt – klukka fljótt“( í sóttkví/einangrun).

Fá tilfelli hafa greinst síðustu 3 daga í Eyjum, en til að skoða betur hvort óþekkt uppspretta getur verið í gangi í samfélaginu telur umdæmislæknir sóttvarna rétt á þessum tímapunkti að bjóða upp á útvíkkaða skimun í Vestmannaeyjum hjá einstaklingum með núverandi einkenni öndunarfærasýkingar. 

Því býðst fólki að svara spurningalista þeim sem hér fylgir og senda inn og hluta þeirra sem svara („líklegasta hópnum“) verður boðið að koma í sýnatöku í framhaldinu. Þeim auðkennum sem boðið verður sýnataka verða birt opinberlega og þá þurfa þeir einstaklingar sem vilja og eiga viðkomandi auðkenni að hafa samband við HSU í Vestmannaeyjum (sjá nánar hvernig þegar listinn verður birtur).

Framkvæmd er með þessum hætti til að tryggja vernd persónuupplýsinga.

Hægt verður að svara spurningarlistanum frá klukkan 13:00 í dag og til 22:00  í kvöld.

Smelltu hér til að fara inn í skjalið

Eða notaðu QR kóðann hér fyrir neðan

Bestu kveðjur,

Hjörtur Kristjánsson umdæmislæknir sóttvarna

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is