Föstudagur 1. desember 2023
Gunnar Inig

Tilkynning frá þjóðhátíðarnefnd – Kæru Þjóðhátíðargestir

14.04.2020

Kæru Þjóðhátíðargestir

Við lifum nú á fordæmalausum og krefjandi tímum. Þjóðhátíðarnefnd ásamt ótalmörgum sjálfboðaliðum hafa allt fram til dagsins í dag þorað að trúa því og unnið að því hörðum höndum að halda Þjóðhátíð í Herjólfsdal í lok sumars.

Í dag er enn óljóst hversu lengi samkomubann og fjöldatakmarkanir munu gilda en í ljósi þeirra upplýsinga sem Ríkisstjórnin hefur nú kynnt mun þessi vinna við undirbúning hátíðarinnar 2020 halda áfram, auk vinnu við ráðstafanir komi til þess að halda verði hátíðina í breyttri mynd. Eins og staðan er í dag vonumst við þó til að geta haldið Þjóðhátíð fyrstu helgina í ágúst.

Að því sögðu er rétt að það komi skýrt fram að öryggi gesta okkar, listamanna, starfsmanna og sjálfboðaliða er þó vissulega forgangsatriði okkar við undirbúning hátíðarinnar og munum við að sjálfsögðu vinna náið með almannavörnum og fara að þeirra tilmælum í öllu. Við munum halda gestum okkar upplýstum eftir því sem okkur berast upplýsingar sem haft geta áhrif á hátíðina.
Hlíðum skilaboðum stjórnvalda, verum heima, þvoum okkur um hendurnar, höldum fjarlægð og hugsum vel um okkur sjálf og hvort annað.

Þrátt fyrir böl og alheimsstríð, þá verður haldin Þjóðhátíð!

Fyrir hönd ÍBV og Þjóðhátíðarnefndar
Hörður Orri Grettisson

Forsíðumynd Gunnar Ingi

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is