Miðvikudagur 27. september 2023

Tilkynning frá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi

25.10.2020

Vegna COVID-19 smits um borð í frystiskipinu Júlíusi Geirmundssyni er rétt að taka fram að ítarlegar leiðbeiningar voru gefnar út á vordögum um hvernig bregðast skyldi við um borð í skipum ef ástæða var til að ætla að smit væri á meðal áhafnarmeðlima. Um borð í skipum er nánd mikil á milli manna og veikindi geta hæglega borist út, eins og því miður sýndi sig í þessu tilfelli. Af þeim sökum var sérstaklega mikilvægt að vera með skýrar leiðbeiningar um bestu framkvæmd í þessum aðstæðum. Leiðbeiningarnar voru samdar sameiginlega af Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi og stéttarfélögum sjómanna, í góðu samstarfi við embætti landlæknis, og sendar á útgerðir.

Í tilfelli Júlíusar Geirmundssonar var ekki farið eftir þessum leiðbeiningum. Samkvæmt þeim hefði átt að hafa samband við Landhelgisgæsluna þegar veikinda varð vart og þar með hefði málið verið komið í réttan farveg. Á þessum misbresti verða skipstjóri og útgerð skipsins að axla ábyrgð.

Mikilvægt er að samskipti útgerða og sjómanna séu góð, sérstaklega þegar í hlut eiga frystiskip sem eru lengi á sjó. Þetta mál hefur skaðað þessi samskipti. SFS hyggjast ræða málið við forystumenn stéttarfélaga sjómanna á næstu dögum. Mikilvægt er að greina hvað fór úrskeiðis og læra af því. Raunir þessara skipverja á Júlíusi Geirmundssyni mega ekki endurtaka sig á íslenskum skipum.

Heiðrún Lind Marteinsdóttir,

framkvæmdastjóri SFS

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is