26.03.2020
Það er alveg á hreinu að eyjafyrirtækin okkar eru að standa sig vel í að hugsa í lausnum. Það hafa nokkur fyrirtæki sent okkur upplýsingar um breytta þjónustu, það er fullt af fólki heima í sóttkví og með mikla orku. Því um að gera að nýta hana í alla þá hluti sem þú ætlaðir að gera seinna. Seinna er núna.
Miðstöðin er eitt af þessum fyrirtækjum með heimsendingu svo það er engin afsökun bara hefjast handa.
Miðstöðin er með opið frá 13:00 – 17:00 og bjóða upp á heimkeyrslu á öllum vörum.
Miðstöðin biðjum fólk um að nýta sér þá þjónustu og panta í gegnum síma 481-1475 eða facebook. Bjóðum upp á símgreiðslur, millifærslur og reikningsviðskipti sem við hvetjum fólk til að nota
