13.02.2020
Allar líkur eru á að veðurspáin muni ganga eftir og hefur veðurstofan sett á rauða viðvörun fyrir Vestmannaeyjar á tímabilinu kl. 05 til kl. 12 á hádegi á morgun.
Aðgerðastjórn almannavarna hefur verið virkjuð í Vestmannaeyjum frá miðnætti og samhæfingarstöð almannavarna á höfuðborgarsvæðinu tekur til starfa á sama tíma. Samkvæmt spánni má búast við ofsaveðri eða jafnvel fárviðri. Sjávarstaða er hækkuð og mikill áhlaðandi og ölduhæð. Ástæða er til að benda eigendum skipa og báta á að tryggja þá en Vestmannaeyjahöfn hefur þegar gripið til ráðstafana vegna veðursins.
Tilkynning lögreglu frá því fyrr í dag er ítrekuð og fólk beðið um að vera ekki á ferðinni á meðan versta veðrið gengur yfir. Þeir sem þurfa aðstoð er bent á að hringja í 112.
Á meðfylgjandi mynd er textalýsing á því hvað rauð viðvörun þýðir. Lögregla mun setja tilkynningar og nýjar upplýsingar inn á facebook síðu lögreglunnar eftir þörfum á meðan veðrið stendur yfir.
