Í dag þriðjudaginn 26. Nóvember verður gangurinn sem nú er gengið í gegnum til að komst í sundlaugina lokað.
Skipt verður um þak á honum og áætlað er að opna ganginn aftur föstudagsmorgun.
Sömu klefar verða ennþá fyrir sundlaugargesti, en þar til gangurinn verður opnaður aftur verður gengið framhjá afgreiðslunni og inn í sundlaugarsal.
Annars ganga framkvæmdir vel og gufan komin á fullt.
Siggi Múrari er byrjaður að flísaleggja karlaklefann og kemur hann vel út.
Einnig viljum við þakka kærlega fyrir þann skilning sem sundlaugargestir hafa sýnt framkvæmdunum
Kveðja Starfólk íþróttamiðstöðvarinnar