08.04.2020 kl 12:15
Símaviðtöl vegna Covid 19 á heilsugæslunni yfir páskana
Í ljósi þeirra aðstæðna sem nú eru og langrar helgi framundan hefur verið ákveðið að bjóða upp á
símaviðtal við hjúkrunarfræðing yfir páskahelgina.
Símatímar eru dagana 9 – 13 apríl, kl 11:00 – 11:30 í síma 4322510
Þessir símatímar eru ætlaðir:
Einstaklingumi með einkenni sem gætu bent til Covid 19 smits; hósti, hiti, höfuðverkur, beinverkir, minnkað bragðskyn, niðurgangur – ógleði sem hugsanlega þyrftu á sýnatöku að halda.
Einstaklingum í sóttkví sem eru að fá einkenni eða einkenni að versna
Einstaklingum í einangrun sem eru með versnandi einkenni
Tekið skal skýrt fram að einstaklingar í sóttkví og einstaklingar í einangrun hringja í 1700 utan þessa símatíma ef versnandi einkenni – ekki bíða til næsta dags.
Eins og áður er hring í síma 1700 ef um önnur veikindi er að ræða eða 112 við neyðartilfelli
Forsíðumynd Heiðar Egilss