10.03.2020
Upplýsingar vegna Covid- 19 má sjá í eftirfarandi tilkynningu frá landlækni.
Hér má finna viðbragðsáætlanir GRV https://grv.is/is/page/vidbragdsaaetlanir
Í ljósi þess að COVID-19 veiran breiðist nú út þá viljum við ítreka við foreldra/forráðamenn að halda ró, sýna ekki ótta í viðurvist barna né ræða óvarlega þannig að þau heyri til. Starfsfólk skólans er einnig meðvitað um þetta.
Í skólanum hefur verið gripið til ýmissa ráðstafana til að fyrirbyggja smit. Þrif hafa verið aukin, fylgst er með að alltaf sé til staðar sápa og handþurrkur í stofum og spritt fyrir nemendur áður en þeir fara í mötuneyti og tölvuver og í matsal verður sjálfskömmtun aflögð og matur skammtaður af starfsfólki skólans.
Skólinn mun einnig takmarka fjöldasamkomur og þess vegna verður t.d skóladegi Hamarsskóla sem átti að vera í næstu viku frestað.
Skólastjórnendur ítreka áfram mikilvægi þess að forráðamenn og nemendur fylgist vel með upplýsingum á vefsíðu landlæknis og að einstaklingar sem finna fyrir einkennum og hafa mögulega verið útsettir fyrir smiti t.d. vegna ferðalaga hringi í síma 1700 og fái leiðbeiningar. Það er mjög mikilvægt að fólk sem hefur verið á ferðalagi um áhættusvæði komi ekki inn í skólann.
Skólastjórnendur GRV.