16.03.2020
Stjórn Drífanda stéttarfélags hefur ákveðið í ljósi fordæmalausra aðstæðna að tryggja heilsu starfsmanna félagsins ásamt þeirra einstaklinga er leita til skrifstofunnar.
Starfsstöð félagsins að Miðstræti 11 verður færð yfir í síma og tölvupóstsamskipti. Þetta mun vara frá miðvikudeginum 18. mars og allavega fram til miðvikudagsins 1. apríl n.k.
Á skrifstofutíma er hægt að hringja í síma 481 2600 og ávallt að senda póst á drifandi@drifandi.is. Fyrirspurnir á ensku sendast á arnar@drifandi.is. Við munum leitast við að svara öllum fyrirspurnum er berast til okkar fljótt og vel.
Áfram verður hægt að kaupa flugmiða, leigja íbúðir og aðra venjubundna hluti á framangreindan hátt. Komi upp mál sem ekki er hægt að leysa í gegnum síma eða tölvupóst verða þau leyst eftir aðstæðum hverju sinni.
Við hvetjum félagsmenn einnig til að fylgjast með tilkynningum á facebook síðu félagsins sem er hægt að komast á í gegnum heimasíðuna www.drifandi.is hafi fólk ekki facebook aðgang.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda, þetta gert með almannahagsmuni í huga.
Stjórn Drífanda stéttarfélags