Fimmtudagur 8. október 2026

Fjármögnun á björgunarskipi Björgunarfélagsins í fullum gangi

Nýsmíði á björgunarskipi Björgunarfélags Vestmannaeyja er vel á veg komin í skipasmíðastöð  Kewatec í Kokkola í Finnlandi

Niðursetning vélbúnaðar er langt komin og var aðalvélum komið fyrir  núna í vikunni. Í framhaldi verður stýrishúsi komið fyrir á skrokknum, en unnið er við þessa hluti  jöfnum höndum í sitthvoru lagi. Eins og sjá má á meðfylgandi myndum hefur tekist vel til við smíði  og frágang á skrokk skipsins.  

Í lok þessa mánaðar munu aðilar frá Björgunarfélagi Vestmannaeyja og Slysavarnarfélaginu  Landsbjörgu fara utan og kynna sér smíðina og annast úttektir. Stefnt er að því að skipið verði afhent  í Vestmannaeyjum í ágúst á þessu ári. Hjá okkur ríkir mikil eftirvænting fyrir nýja skipinu sem mun  leysa af eldra björgunarskip félagsins, en björgunarskipið Þór er að verða 28 ára gamalt og hefur  reynst Vestmannaeyjingum mjög vel. 

Fjármögnun á þessu stóra verkefni er í fullum gangi og hafa íslenska ríkið, Sjóvá, Vestmanneyjabær  ásamt fleiri aðilum stutt verkefnið dyggilega nú þegar. Kostnaður við skipið er samt sem áður  285.000.000,- króna og erum við því áfram að leita að stuðningi til að fullfjármagna björgunarskip til  eyja. 

Það er við hæfi á sjómannadegi þegar fagnað er mjög góðum árangri í öryggismálum á sjó og fallinna  sjómanna er minnst, að við í Björgunarfélagi Vestmannaeyja minnum á styrktarlínu á heimasíðu  félagsins. Þar geta allir þeir sem vilja, styrkt okkur í kaupum á nýju og öflugra björgunarskipi með því  að velja Björgnarfélag Vestmannaeyja í greiðsluferlinu. 

Beinn tengill á styrktarlínu : Skyrkur

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search