Helgi R T

Tilkynning frá Aðgerðastjórn – fjögur ný smit bættust við í dag

31.03.2020 kl 19:09

Fjögur smit hafa bæst við í Vestmannaeyjum og eru staðfest smit á COVID-19 því orðin 63 talsins. Þrír af þessum fjórum voru í sóttkví. Fjöldi þeirra sem settir hafa verið í sóttkví er 605 og 238 hafa lokið sóttkví. Þremur er batnað. Enn eru tafir á vinnslu hjá LSH og því ekki hægt að rýna mikið í fjölda smita síðustu daga.  

Að gefnu tilefni er upplýst að ástæða þess að tveir sjúkrabílar mæta oftast í útköll um þessar mundir er vegna verkferla í tengslum við sóttvarnir en ekki endilega alvarleika veikinda. Mikið af góðum upplýsingum vegna veirunnar eru inni á aðgengilegri vefsíðu landlæknis www.covid.is

Við Eyjamenn erum þrautseig og ætlum að halda þetta út. Förum eftir öllum reglum um sóttvarnir. Með því fækkum við smitum og verjum okkar viðkvæmasta fólk.

Aðgerðastjórn

Forsíðumynd Helgi R T

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is