Þriðjudagur 26. september 2023

Tilkynning frá Aðgerðastjórn – 17 hafa náð bata

06.04.2020 kl 15:

Sjö einstaklingar til viðbótar hafa verið greindir með COVID-19 og er fjöldi smitaðra orðinn 102 í Vestmannaeyjum. Fjórir þeirra voru þegar í sóttkví.

Enn fjölgar í hópi þeirra sem hafa náð bata og eru þeir orðnir 17.

Í dag eru 211 einstaklingar í sóttkví. Enn vantar niðurstöður vegna einhverra sýna frá Íslenskri erfðagreiningu en von er á þeim á morgun.

Frá upphafi hafa 53% greindra einstaklinga verið í sóttkví af þeim sem greindir hafa verið í Vestmannaeyjum.

Enn er brýnt fyrir Eyjamönnum að fara að öllum reglum. Þá er því beint til fólks að senda aðeins einn fjölskyldumeðlim í matvöruverslanir til að takmarka fjölda þeirra sem þar ganga um. Þá er minnt á þá reglu sóttvarnalæknis að allt íþróttastarf er óheimilt vegna sérstakrar smithættu.

Aðgerðastjórn

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is