23.03.2020 kl 23:33
Rannsóknir á sýnum vegna COVID-19 sem lokið var í kvöld hafa leitt í ljós að 11 til viðbótar eru með staðfest smit í Vestmannaeyjum.
Af þeim 11 sem eru nýgreindir voru 6 þegar í sóttkví. Heildarfjöldi smitaðra í Vestmannaeyjum er því orðinn 41 talsins.
Smitrakningum er ekki lokið vegna þessara aðila.
Við fjölda einstaklinga í sóttkví bætast þeir sem greindust í gærkvöldi þar sem smitrakningu er lokið vegna þeirra. Fjöldi þeirra sem eru í sóttkví er samtals 487 talsins.
Mikilvægt er að fólk gæti að eigin sóttvörnum og fari að leiðbeiningum um sóttkví og einangrun. Reynum öll að haga okkur í samræmi við samkomubann og gæta að fjarlægðarmörkum.
Gangi ykkur vel.