Já þið lásuð rétt
Tígull er loksins mættur aftur inn um lúgur hjá bæjarbúum. Mikið er nú gaman að vera komin aftur úr fríi. Við tókum stöðuna á ofur duglegu eldir borgurum okkar sem eru í Janus verkefninu, við kynnum hundafóður sem verður til kynningar næstu helgi hér í Eyjum, við kynnumst fimmaura brandarakalli sem ætlar svo að vera með skrítlu í Tígli hér eftir, Vestmannahlaupið er framundan, útsala í Miðstöðinni, Bíó um helgina , hollustu-nammi-uppskrift, og slatti af atvinnuauglýsingum. Það er sem sé á nógu að taka hér. Þið verðið sennilega restina af vikunni að komast í gegnum Tígul vikunar…… góða skemmtun
Já og það var hann Halldór B. Halldórsson sem tók þessa fallegu mynd sem prýðir forsíðuna.
Kata Laufey og Lind