08.01.2020 kl 22:20
Áhöfnin á TF-EIR sótti tvo sjúklinga til Vestmannaeyja á þriðja tímanum í dag. Vegna veðurs reyndist ekki unnt að senda sjúkraflugvél til Eyja. TF-EIR lenti á flugvellinum í Vestmannaeyjum þar sem tveir sjúklingar fóru um borð.
Á bakaleiðinni var skyggni orðið slæmt og þegar komið var Lækjarbotnum í nágrenni Hólmsár var ákveðið að lenda þyrlunni á hól þar sem áhöfnin beið af sér verstu snjóélin. Eftir tíu mínútna bið var svo haldið á Reykjavíkurflugvöll og sjúklingarnir voru fluttir þaðan í sjúkrabíl á Landspítalann.
Greint er frá þessu á facebook síðu Landhelgisgæslunnar