Pysjueftirlitið hefur áður bent á að pysjurnar virðast vera óvenju þungar í ár, en þessi slær öll met. Þessi pysja fannst í gær við frystigeymslu VSV en hún var 429 grömm! Það var Ágústa Ósk sem fann pysjuna en starfsmenn pysjueftirlitsins trúðu ekki sínum eigin augum þegar Ágústa sendi mynd af vigtuninni og báðu hana að sannreyna vigtina eins og meðfylgjandi mynd sýnir. Það er einmitt mjög sniðugt að setja eitthvað með þekktri þyngd á vigtina til að vera viss um að hún sé rétt. Sérstaklega þegar pysjurnar vega mjög lítið eða mikið.


Hér er verið að sannreyna vigtina með að vigta þyngdina á smjöri – sem þýðir að vigtin er rétt.


