Föstudagur 1. desember 2023

ÞÚSUND ANDLIT HEIMAEYJAR – myndband

04.06.2020

Hér er kynning á menningar- og listaverkefni Þúsund andlit Heimaeyjar.

Vertu með í menningar- og listaverkefni Þúsund andlit Heimaeyjar 

Við tökum vel á móti þér og þínum yfir sjómannadagshelgina á Leturstofunni, Strandvegi 47
Format myndarinnar er einstakslings portrait eingöngu. (einstaklings myndir sem er tilvalin fyrir instagram og eða facebook)


Föstudaginn 5. júní frá kl 16 og frameftir
Laugardaginn 6. júní frá kl 12 – 17
Sunnudaginn 7. Júní frá 12 – 17


Bjarni Sigurðsson og Leturstofan eru að fara af stað með menningar- og listaverkefni sem heitir Þúsund andlit Heimaeyjar.
Hugsunin á bakvið verkefnið er þannig að íbúum Vestmannaeyja ásamt þeim sem hafa tengingu þangað gefst kostur á að koma í myndatöku og fá mynd af sér.


Myndatakan verður að kostnaðarlausu fyrir þátttakendur og fá allir rétt til að birta sýna mynd á samfélagsmiðlum. Einnig verður boðið upp á mynd í fullri stafrænni upplausn eða prentaðri útgáfu, þá gegn vægu gjaldi.
Þegar safnast hafa saman myndir af yfir 1000 ólíkum andlitum Heimaeyjar verður haldin sýning þar sem samansafn af öllum þessum myndum verður til sýnis.

Gagnagrunnur verkefnisins verður að lokum gefinn á safn bæjarins.
Verkefnið er unnið af Bjarna Sigurðssyni ljósmyndara og verður hann í samstarfi við
Leturstofuna. Bjarni lærði ljósmyndun á Upplýsinga- og margmiðlunarbraut Iðnskólans
í Reykjavík árið 2005. Bjarni starfar sem yfirmatreiðslumeistari á HSU Vestmannaeyjum

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is