04.02.2020
Hólmgeir Austfjörð betur þekktur sem áhugaljósmyndri Tíguls rak augun í Múkkaræfil sem var í vandræðum á dekkinu á Ottó N, um daginn.
Þessi múkkaræfill var í vandræðum hjá okkur um borð í Ottó N, ég gat bara ekki horft á hann svona á á dekkinu, algjörlega orkulaus og rennandi blautur og búinn að maka sig allan út í glussa.
Það var því ekkert annað í stöðunni en að sápa hann í volgu vatni og búa vel um hann. Eftir tvær umferðir af þvotti þá lítur hann miklu betur út og er hinn hressasti. Páll Marvin Jónsson ráðlagði mér hvað gera skildi til að reyna að bjarga honum og það svínvirkar.
Hér áður fyrr var það Múkkinn sem kom mönnum að landi ef þeir villtust á sjó, við stöndum saman kallarnir? Vonandi lifir hann þetta af??