Þú getur varið þig og aðra gegn smiti með því að fylgja þessum ráðum

05.10.2020

Helstu einkenni COVID-19

Helstu einkenni COVID-19 sýkingar minna á venjulega flensu: hiti, hósti, bein- og vöðvaverkir og þreyta. Meltingareinkenni (kviðverkir,ógleði/uppköst, niðurgangur) eru ekki mjög áberandi með COVID-19 en eru þó þekkt. Breytingu, eða tapi á bragð- og lyktarskyni er lýst hjá 20–30% sjúklinga.

Hér eru upplýsingar um kórónaveiruna á auðlesnu máli sem voru unnar af Landssamtökunum Þroskahjálp.

Þú getur varið þig og aðra gegn smiti með því að fylgja þessum ráðum

Þvoðu hendur þínar reglulega með vatni og sápu, minnst 20 sekúndur í hvert skipti. Gert hefur verið myndband sem útskýrir mikilvægi handþvottar sem hluta af sóttvörnum, lengri útgáfa og styttri útgáfa.

Ef vatn og sápa eru utan seilingar er gott að nota handspritt, til dæmis þegar þú hefur notað greiðslukort eða komið við fleti sem margir snerta, svo sem hurðarhúna. Á vef landlæknis eru góðar upplýsingar um hvernig gæta má varúðar gegn sýkingum.

Forðastu að bera hendur upp að andlitinu, sérstaklega augum, nefi og munni.

Þrífðu oftar fleti sem eru mikið notaðir.

Ef þú þarft að hósta eða hnerra skaltu nota olnbogabótina eða einnota klúta. Þannig kemurðu í veg fyrir að úði fari á hendur. Gættu þess að hósta eða hnerra ekki á aðra.

Takmarkaðu náin samskipti við annað fólk, t.d. handabönd og faðmlög. Finndu aðrar leiðir til þess að heilsa sem ekki fela í sér snertingu. Sóttvarnalæknir hefur gefið út útskýringar á 1 metra nándarreglunni.

Ef þú ert eldri borgari eða með ákveðna undirliggjandi sjúkdóma er ráðlagt að halda sig fjarri mannamótum og fjöldasamkomum.

Þar sem ekki er hægt að tryggja 1 metra fjarlægð milli ótengdra einstaklinga með fjöldatakmörkun verði krafist notkunar andlitsgrímsem hylur nef og munn. Mikilvægt er að kynna sér leiðbeiningar um notkun á hlífðargrímum. Þetta á t.d. við um almenningssamgöngur, þ.m.t. innanlandsflug og farþegaferjur, og starfsemi s.s. hárgreiðslustofur og nuddstofur. Mikilvægt er að hafa í huga að ekki er mælt með almennri grímunotkun á almannafæri og að rök og skítug gríma gerir ekkert gagn og getur aukið sýkingahættu. Jafnframt gerir einnota gríma, sem notuð er oftar en einu sinni, ekkert gagn og getur einnig aukið sýkingarhættu. Hlífðargríma, sem hylur ekki bæði nef og munn eða er höfð á enni eða undir höku, gerir heldur ekkert gagn

Forðastu að umgangast fólk sem er með einkenni sem minna á flensu.

Ef þig grunar að þú sért með smit

Haltu þig heima og hafðu samband í síma við heilsugæsluna þína, Læknavaktina í síma 1700 eða í gegn um netspjall á heilsuvera.is. Heilbrigðisstarfsfólk verður þar til svara og ráðleggur þér um næstu skref.

Það er mjög mikilvægt að þú farir ekki í eigin persónu á læknavakt eða heilsugæslu.

Ef þú greinist með COVID-19, getur smáforritið Rakning C-19 hjálpað til við að rifja upp ferðir þínar þegar upp kemur smit eða grunur um smit. Appið er mikilvægur hlekkur í því viðamikla starfi sem er í gangi hér á landi vegna COVID-19.

Ef þig grunar að einhver í þínu nærumhverfi sé smitaður/smituð

Gættu þess að eiga ekki í nánu samneyti við viðkomandi. Ráðlegðu viðkomandi að hafa samband við heilsugæsluna, 1700 eða Heilsuveru.is og ræða einkenni sín og fá ráð um hvernig best er að bregðast við.

Hér eru upplýsingar um kórónaveiruna á auðlesnu máli sem voru unnar af Landssamtökunum Þroskahjálp.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is