21.02.2020
Miss Universe Iceland fer fram í fimmta sinn í ár og afhjúpaði Manuela Ósk, framkvæmdastjóri keppninnar, keppendur í gær. Um er að ræða 19 stúlkur sem er skipt í tvo hópa. Í fyrra voru það 25 stelpur sem var skipt í þrjá hópa, þannig hugsanlega bætist við keppendalistann.
Þær dömur sem taka þátt eru: Thelma Líf Heiðarsdóttir, Kamilla Kristrúnardóttir Hancock, Amelia Rún Pétursdóttir, Unnur Ýr Ólafsdóttir, Dísa Dungal, Berglind Ýr Heiðdísardóttir, Heiðrún Anna Eyjólfsdóttir, Melkorka Sól Sigurjónsdóttir, Brigitta Kristín Bjarnadóttir, Kiana Sif Limehouse, Jenny Sulollari, Sunna Dögg Jónsdóttir, Guðrún Inga Helgadóttir, Móeiður Svala Magnúsdóttir, Mirjam Yrsa Friðleifsdóttir, Anna Mist Guðmundsdóttir, Díana Iva Gunnarsdóttir, Auðbjörg Helga Óskarsdóttir og Halla Karen
Eyjadömurnar sem taka þátt eru nr. 9 Brigitta Kristín Bjarnadóttir, 18 ára. Nr. 17 Díana Íva Gunnarsdóttir, 25 ára og nr. 18 Auðbjörg Helga Óskardóttir, 19 ára.
Hér má sjá allar 19 stúlkurnar sem taka þátt í ár, Tígull mun fylgjast með þessum ungu hugrökku dömum í þessu ferli.
Manuela Ósk framkvæmdastjóri keppninnar