Fjórir strákar voru valdir frá ÍBV körfuboltanum og tóku þátt í úrvalsbúðum KKÍ um helgina
KKÍ stóð fyrir æfingabúðum fyrir úrvalshópa hvers árgangs líkt og gert hefur verið undanfarin ár og skilað góðum árangri. Úrvalshóparnir, sem eru undanfari yngri landsliða Íslands, æfðu undir leiðsögn reyndra þjálfara ásamt vel völdum gestaþjálfurum. Þar var farið yfir ýmis tækniatriði á stöðvaræfingum eins og skottækni, sendingatækni, boltameðferð, sóknarhreyfingar og varnarleik og svo var einnig spilað í liðum.
Það eru þjálfarar félaganna sem tilnefna sína leikmenn í búðirnar en í sumar eru æfingabúðirnar fyrir drengi og stúlkur sem fædd eru árin 2008, 2009 og 2010.
Eingöngu boðaðir leikmenn geta skráð sig til þátttöku.
Þetta var fyrri helgin af þessum æfingabúðum en seinni helgin verður helgina 21.-22. ágúst.
Þjálfari strákanna í Eyjum er Brynjar Ólafsson.


