ÍBV leikur gegn Haukum í leik 3 í úrslitaeinviginu. Með sigri geta okkar menn tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn og því þörf á stuðningi nú, sem aldrei fyrr!
Miðasala á leikinn er í fullum gangi. ÍBV hvetur fólk til að tryggja sér miða sem fyrst á miðasöluappinu Stubbur eða á https://stubb.is/
Á appinu er líka hægt að kaupa veitingar fyrirfram. Hamborgarar, bjór og gos til sölu þar. Í upphituninni verður sér „Stubbs-afgreiðsla“ til þess að flýta fyrir og minnka raðir.
Við hefjum upphitun kl.17:00 – leikur hefst 19:15
Opið verður inn í sal 18:30, 45 mínútum fyrir leik. Það liggur ljóst fyrir að það verður ansi fjölmennt og fólk því hvatt til að mæta fyrr en seinna í hús.
Leó Snær spilar og syngur, keyrir alvöru Eyja-stemningu í gang!