Þriðji leikur ÍBV og Vals í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn fer fram í kvöld. Staðan í einvíginu er 1-1.
Tígull hefur fregnir af því að fjöldi stuðningsmanna ætli að fylgja ÍBV í Origo-höllina í kvöld, en leikurinn hefst þar klukkan 19.30.
Á facebook-síðu handknattleiksdeildar ÍBV er fólki bent á að skynsamlegt sé að tryggja sér miða strax á miðasölusíðunni Stubb, til þess að vera örugglega með miða á leikinn. Þá segir að breyting hafi verið gerð á verðinu í rútuna, það kostar 2.000 kr.- á mann og fylgir Herjólfsmiði fram og til baka með í því! Nánari upplýsingar og skráning í rútuferð er hér.
Fyrir þá sem ekki komast til að styðja við bakið á strákunum má benda á að leiknum verður sjónvarpað á Stöð 2 Sport.

